Unnið kornmeti, pasta og brauð: Fæðutegundir úr ræktuðu
korni eru „nýjar" fyrir heila okkar, afurð tíu þúsund ára gamallar
akuryrkjubyltingar. Korn, sem fannst tæpast í mataræði steinaldarinnar, átti
engan þátt í mótun erfðavísa okkar. Engu að síður er það verulegur þáttur í
mataræði nútímans. „Korn er kannski ekki skaðlegt í sjálfu sér," segir dr.
Eaton, en hann óttast að það komi í stað mjög mikilvægra ávaxta og grænmetis, sem
hafa verið uppistaða í mataræði okkar um milljónir ára, „þar sem korn hefur
aftur á móti verið uppistaðan einungis í fáeinar aldir." Aðrir vísindamenn
benda á að korn, sérstaklega hveiti, geti valdið vægum ofnæmisviðbrögðum hjá
mörgu fólki, orsakað höfuðverk og þunglyndi, ásamt liðagigt og þarmavandamálum,
sem sé hugsanleg afleiðing erfðafræðilegs ósamræmis. (Úr bókinni)
No comments:
Post a Comment