Monday, May 14, 2012
Kólín
Kólín, sem er amínósýra, verndar hugsanlega heilann alla ævi, allt frá fósturstigi til elliára. [ ... ]
Margur kann að verða hissa þegar hann kemst að því að eggjarauða er ein auðugasta og áreiðanlegasta uppspretta kólíns. Þannig að það að forðast eða takmarka eggjaneyslu verulega, getur verið skaðlegt fyrir virkni heilans. Neysla eggja hefur hrapað niður á síðustu þrjátíu árum vegna aðvarana um að eggjarauðan innihaldi mikið af æðastíflandi kólesteróli. Afleiðing þess varð sú að neysla kólíns féll skarplega, því eggjarauða er ein aðaluppspretta kólíns. Nú hafa mörg ný sönnunargögn sýnt að magn kólesteróls í fæðunni er ekki aðalástæða þess að kólesterólmagn blóðsins eykst. Mikið kólesteról stafar af því að mikið er borðað af mettaðri fitu, svo sem mjólk, smjöri, ostum og kjöti. Reyndar er verið að bera sakir af eggjunum. Í apríl árið 1999 lýstu vísindamenn við Harvard því yfir, að ósennilegt væri að eitt egg á dag yki hættu á hjartaáfalli eða heilablóðfalli, samkvæmt greiningu við „The Harvard Nurses' Health Study", og „The Health Professionals Follow Up Study". Rannsökuð var eggjaneysla 100.000 einstaklinga í meira en áratug. Frank B. Hu, M.D. og félagar hans við Harvard komust að þeirri niðurstöðu að eitt egg á dag væri ekki skaðlegt og gæti jafnvel hjálpað til við að koma í veg fyrir hjartasjúkdóma, því eggin innihalda næringarefni, þar á meðal andoxunarefni, fólínsýru, önnur B-vítamín og ómettaða fitu, sem kann að vinna á móti öllum slæmum áhrifum mikils kólesterólmagns eggjarauðunnar. Og einn þessara bætiefnakosta er kólín.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment