Monday, May 14, 2012

Sykur

Það kann að koma þér á óvart að heilinn er algert átvagl á sætuefni í blóðinu. Heilafrumurnar eru háðar eðlilegu magni blóðsykurs - ekki of miklu og ekki of litlu - til þess að geta starfað eðlilega. Reyndar er ekkert heilanum jafn mikilvægt en tegund sykurs sem kölluð er glúkósi eða þrúgusykur, og streymir um æðar þínar og frumur og ákvarðast að miklu leyti af því hvað þú borðar. Taugafrumur geta ekki komist af og þrifist án glúkósa í blóðinu, sem líka er þekktur sem einfaldlega „blóðsykur". Hann er upprunalegt „gáfulyf“ náttúrunnar og skaphífir. Hann getur hresst við minni þitt, einbeitingu og námshæfileika. Hann getur hjálpað til við að reka burt leiðindi og draga úr pirringi. Skortur á blóðsykri getur valdið því að það hægir á heilanum og virkni hans minnkar. Engu að síður getur samt of mikill sykur verið mjög skaðlegur. Hann getur skaðað frammistöðu heilans og minni, truflað viðkvæma, unga heila og farið illa með uppbyggingu heilafruma og hraðað hugrænni hrörnun með aldrinum.

No comments:

Post a Comment