Monday, May 14, 2012

Kaffi


Því verður ekki neitað að við erum þjóð koffinfíkla og það geðvirkandi lyf hefur veruleg áhrif á heila okkar. Að minnsta kosti 80% fullorðinna Vesturlandabúa neyta reglulega koffíns í nægilegu magni til þess að hafa áhrif á virkni heilans, segja sérfræðingar. Og þá eru ekki taldar með þær milljónir barna, sem eru háð koffín kóladrykkjum og öðrum gosdrykkjum.
Stóra spurningin er hvort koffínið sé gott eða slæmt fyrir heilann. Það fer allt eftir því hvernig heili okkar bregst við koffíni. Flestum finnst þeir verða hressari og kátari, skýrari í hugsun og með betri einbeitingu, orkuríkari og meira skapandi, jafnvel alsælir eftir koffín skammt, segja sérfræðingarnir. Aðrir verða taugaóstyrkir, kvíðnir, fá höfuðverk og eiga jafnvel á hættu að fá hræðslukast eftir að hafa drukkið kaffi eða neytt koffíns. Þetta er að mestu háð líffræðilegum erfðaeiginleikum einstaklingsins. Það er líka satt að flest af því fólki sem neytir koffíns reglulega, hefur tilhneigingu til þess að verða vægt háð því, þar með talin börnin. Koffín hefur svolítið af eiginleikum „geðörvandi" lyfja, en án afgerandi áhættu þeirra, segja sumir sérfræðingar. 

No comments:

Post a Comment